Árleg bólusetning forgangshópa gegn inflúensu hefst 20. október. Hægt er að bókað tíma á mínum síðum á Heilsuveru eða í síma 595 1300.
Eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
- Fólk 60 ára og eldra.
- Börn 6 mánaða til 4 ára. Þau sem hafa náð 2 ára aldri munu verða bólusett með nefúða.
- Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
- Barnshafandi konur.
- Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
- Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu.
Vinsamlega munið að koma í stuttermabol til að flýta fyrir bólusetningu.
Nánari upplýsingar á vef Embættis landlæknis.
Frá 9. nóvember eru öll velkomin í bólusetningu.

