Skimanir

Skimanir

Skimun fyrir frumubreytingum og krabbameini í leghálsi

Frá 1. janúar 2021 hefur heilsugæslan tekið yfir töku sýna frá leghálsi kvenna vegna skimunar fyrir leghálskrabbameini.  Markmið skimunar er að greina forstigsbreytingar í frumum sem geta þróast í krabbamein seinna ef ekkert er aðhafst.  Ef frumubreytingar greinast er þeim fylgt eftir á fyrifram skilgreindan hátt.

Þessi sýni voru áður tekin hjá Krabbameinsfélaginu en þessi breyting er gerð til samræmingar á alþjóðlegum stöðlum.

Ljósmæður stöðvarinnar taka sýnin og hafa fengið viðeigandi fræðslu og þjálfun.  Sýni eru tekin á miðvikudögum.

Ráðlögð sýnataka er eftirfarandi:

23-29 ára á 3 ára fresti

30-65 á 5 ára fresti.

Boðsbréf eru send til kvenna á þessum aldri.  Hægt er að panta tíma eða bóka beint í Heilsuveru.

Sýnin eru send til Danmerkur til greiningar.   Öll eftirfylgd er miðlæg ef rannsókn bendir til sjúkdóms. Kvennadeild Landspítala fylgir eftir ef fara þarf í víðtækari sýnatökur.

Tímapantanir: 

  1. Ef þú hefur fengið boðsbréf: hægt að panta skimunartíma í Heilsuveru eða hringja í 595 1300
  2. Ekki boðsbréf: þá þarf að hringja í 595 1300

Tengill  á heilsuveru um skimanir fyrir leghálsmeinum:
Skimun fyrir leghálskrabbameini | Heilsuvera 

Skimun fyrir brjóstakrabbameini

Landspítala hefur verið falin framkvæmd skimana fyrir krabbameini í brjóstum frá 1. janúar 2021 í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri.  Húsnæði að Eiríksgötu 5 á 3. hæð hefur verið endurnýjað og búið öllum nauðsynlegum búnaði.

Miðað er við að konum sé boðin skimun fyrir brjóstakrabbameini að jafnaði á tveggja ára fresti á aldrinum 40-69 ára en á 3 ára fresti frá 70-74 ára.  Með skimun er átt við skoðun hjá einkennalausum konum.

Panta tíma í skimun fyrir brjóstakrabbameini 

Konur geta pantað tíma í skimun fyrir brjóstakrabbameini þegar boðsbréf berst, hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana í síma 513-6700 milli kl. 8:30 og 12:00 alla virka daga frá eða með því að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is. Í framtíðinni er stefnt að því að allar konur geti bókað eða breytt tíma á Heilsuvera.is.

Konur með einkenni frá brjóstum og kvenlíffærum

Konum með einkenni frá brjóstum og kvenlíffærum er ráðlagt að leita til læknis.
Skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi er forvörn sem býðst einkennalausum konum.

Meiri upplýsingar má fá um skimanir og ráðleggingar á eftirfarandi síðum:

Samhæfingarstöð krabbameinsskimana (heilsugaeslan.is)

Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands

Fræðsluefni frá Krabbameinsfélagi Íslands

Skimun fyrir krabbameini – Embætti landlæknis (landlaeknir.is)

Opnunartími

Heilsugæslan Kirkjusandi notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn. Upplýsingarnar eru nafnlausar.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á hglagmuli.com
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur