Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að panta tíma í covid19 bólusetningu.
Heilsugæslustöðvar sjá ekki um niðurröðun í tíma og við getum ekki haft nein áhrif á að flýta fyrir ákveðnum hópum eða vegna sjúkdómsgreininga einstaklinga.
Sóttvarnarlæknir ber ábyrgð á skipulagningu bólusetninga samkvæmt reglugerð
Allir sem vilja fá bólusetningu munu fá hana. SMS skilaboð eru notuð mest.
Vinsamlegast fylgist með fréttum af síðu www.covid.is og öðrum miðlum.
Hafi fólk bráðaofnæmi er ekki ráðlegt að bólusetja.
Þeir sem ekki þiggja bólusetningu eru beðnir um að láta vita á bolusetning@heilsugaeslan.is eða i síma 513-5000
Hér eru nánari upplýsingar um Covid19 og bólusetningar COVID-19 (heilsugaeslan.is)