Í forgangi verða einstaklingar 60 ára og eldri og fólk í áhættuhópum.
Boðið verður upp á að fá bæði bóluefnin í sömu heimsókn. Einnig verður hægt að velja að fá annað hvort bólusetningu við inflúensu eða Covid-19.
Opnað hefur verið fyrir bókanir í bólusetningar á Mínum síðum á Heilsuveru
Sextíu ára og eldri og fólk í áhættuhópum þurfa ekki að greiða fyrir bólusetningar.
Upplýsingar um áhættuhópa og nánari upplýsingar um bóluefnin má finna á vef embættis landlæknis.