Opið hús verður á Heilsugæslunni Kirkjusandi dagana 11. til 15. desember milli klukkan 14 og 15. Ekki þarf að bóka tíma. Munum eftir stuttermabolnum.
Allir sem koma geta fengið bólusetningu við inflúensu. Þá geta 60 ára og eldri fengið bólusetningu við Covid-19. Bólusetning við inflúensu og Covid-19 er öllum 60 ára og eldri að kostnaðarlausu.
Skjólstæðingar okkar, 60 ára eldri, sem eru með skráð farsímanúmer hjá okkur munu fá SMS með upplýsingum um bólusetningarátakið.